Gellur í sparifötunum, fyrir 4-6.
Hráefni:
750 g gellur
250-500 g brokkolí
1 askja púrrulauks smurostur
Sojamjólk eða rjómi
jurtasalt og sítrónupipar
ostur
Aðferð:
Setjið gellur og brokkolí í eldfast mót og kryddið með jurtasalti og sítrónupipar. Hrærið smurostinn með sojamjólk eða rjóma eftir hvað hver vill. Hellið yfir gellurnar í mótið, setjið rifin ost yfir og bakið í ofni í 200°C í 30 mínútur eða eftir þörfum.
Berið fram með híðishrísgrjónum, speltbrauði og salati.
Hráefni:
350 gr saltfiskur og 400 gr stórar kartöflur
1 stór rauður laukur saxaður smátt
( mætti bragðbæta með 1-2 rifum af hvítlauk)
2-3 msk söxuð steinselja
3 egg
olía til steikingar
Aðferð: Matreiðsla:
Saltfiskurinn soðinn og svo leystur í sundur.
Kartöflurnar soðnar, afhýddar og stappaðar.
Saltfiski, kartöflum blandað saman og lauk og steinselju.
Eggjunum hrært saman við, einu í senn. Deigið á að vera frekar þykkt en ef það er of þurrt má bleyta í því með svolítilli mjólk.
Olía hituð á pönnu. Bollur mótaðar úr deiginu og steiktar þar til þær eru gullinbrúnar; snúið nokkrum sinnum.
Teknar upp látnar standa á eldhúspappír.
Bornar fram heitar með kartöflum og bræddu smjöri, með grænmetissalati.
Einnig sem meðlæti með soðnu pasta.
Hráefni:
700 gr fiskihakk
4 msk. Brauðrasp
½ laukur, gróft rifinn
3-4 msk. Ljósar rúsínur, saxaðar
3 msk. Furuhnetur
Handfylli fersk steinselja, mynta eða kóríander, saxað
1 egg
2 tsk. Tapenade frá Sacla eða tómatmauk
½ msk. Kanill
Salt og pipar
4 msk. Hveiti
4 msk. Olía
Aðferð: Setjið hakkið í skál og blandið öllu nema olíunni saman við. Mótið bollur og steikið þær í olíu. Berið fram með salati og kúskús.
Hráefni:
2 flök skötuselur
150 g sveppir
1stk laukur í sneiðum
1/2 kúrbítur í sneiðum
gulrætur,blómkál,brokkoli,eða það sem er til í ísskápnum
pipar og salt á skötuselinn
1 krukka grænt pestó
krydd eftir smekk á grænmetið
Kryddlegnar gellur í eggjahjúp (fyrir 4)
1 kg gellur
1 líter ólífuolía
2-5 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 msk engifer, smátt saxað
1 tsk kumin
1 stöngull sítrónugras, saxaður mjög smátt, má sleppa
1/2 tsk salt
1/2 chili-aldin, steinhreinsað og smátt saxað
1-2 tsk paprikuduft
1-2 tsk karríduft
2 egg
1/2 dl mjólk
1 dl hveiti
50 gr smjör
Aðferð: Setjið gellurnar í sigti og látið renna vel af þeim. Þurrkið síðan mestu bleytuna af gellunum og setjið í skál ásamt öllu sem á að fara í réttinn nema eggjum, mjólk, hveiti og smjöri. Blandið vel saman og setjið plastfilmu yfir. Geymið í a.m.k 5 daga í kæli og alveg upp í 10 daga (ekki djók). Setjið svo gellurnar aftur í sigti og látið renna vel af þeim. Blandið vel saman í skál eggjum, mjólk og hveiti. Setjið gellurnar í eggjablönduna og takið síðan eina og eina upp úr blöndunni, steikið í smjöri í 2-3 mín báðum megin. Berið fram með kartöflum og salati.
Hráefni: 4 stórar kartöflur, 1 buff laukur, 4-500 gr soðinn og hreinsaður saltfiskur, 1appelsina.
Aðferð: Afhíðið kartöflurnar og steikið á pönnu þar til þær eru
ljós brúnar, dreifið á fat. Því næst er laukurinn skorinn í strimla, gljáður í oliu og settur á kartöflurnar því næst saltfiskurinn. Appelsínan afhídd skorin í skífur sem er svo raðað á fiskinn. Borið fram kalt með grófu brauði.


